Tryggðu sér sæti í úrvalsdeildinni

Daníel Freyr Kristjánsson í leik með 21-árs landsliði Íslands.
Daníel Freyr Kristjánsson í leik með 21-árs landsliði Íslands. mbl.is/Eyþór Árnason

Fredericia, lið Daníels Freys Kristjánssonar, tryggði sér í kvöld sæti í dönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu eftir stórsigur gegn Hvidovre á heimavelli, 5:1, í B-deildinni í kvöld.

Fredericia er með 58 stig í öðru sæti deildarinnar, átta stigum á undan Horsens sem er með 50 stig í þriðja sætinu þegar tvær umferðir eru eftir. OB var þegar komið upp með 60 stig fyrir leiki dagsins og gerði jafntefli við Horsens, 2:2, í kvöld.

Úrslitin réðust endanlega í uppbótartíma í kvöld þegar OB skoraði tvívegis og jafnaði metin gegn Horsens sem var 2:0 yfir fram á lokamínúturnar.

Daníel Freyr, sem er 19 ára gamall vinstri bakvörður, hefur leikið í allan vetur með Fredericia sem lánsmaður frá dönsku meisturunum Midtjylland. Hann kom inn á sem varamaður í byrjun síðari hálfleiks í dag þegar Fredericia var marki undir og hafði greinilega góð áhrif því tólf mínútum síðar var liðið komið í 3:1 og með öll tök á leiknum.

Daníel hefur leikið 29 af 30 leikjum Fredericia í deildinni á tímabilinu, oftast í byrjunarliðinu.

Galdur Guðmundsson, sem er einnig 19 ára, er í láni hjá Horsens frá FC Köbenhavn og hann kom inn á sem varamaður á 81. mínútu í leiknum gegn OB í kvöld. Þetta er í sjötta sinn sem Galdur kemur við sögu í deildarleik hjá Horsens eftir að hann kom til félagsins eftir áramótin.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert