Borussia Dortmund frá Þýskalandi hefur sett sig í samband við Sunderland á Englandi til að reyna fá miðjumanninn Jobe Bellingham í sínar raðir.
Sky í Þýskalandi segir frá en forráðamenn Dortmund voru á Englandi á miðvikudaginn var til að ræða við forráðamenn Sunderland.
Fari Jobe til Dortmund myndi hann fylgja í fótspor stóra bróður síns sem var þar frá 2020 til 2023 áður en hann gekk í raðir Real Madrid.
Jobe Bellingham er með samning hjá Sunderland til 2028 en hann er laðeins tvítugur og ykilmaður í liðinu.
Sunderland er 2:1-yfir í undanúrslitaeinvígi sínu gegn Coventry í umspili um sæti í ensku úrvalsdeildinni eftir sigur í Conventry í gærkvöldi.