Börsungar fengu góðar fréttir fyrir El Clásico

Alejandro Balde er mjög mikilvægur í liði Barcelona.
Alejandro Balde er mjög mikilvægur í liði Barcelona. AFP/Josep Lago

Alejandro Balde og Marc Casadó leikmenn Barcelona eru klárir í slaginn gegn Real Madrid í efstu deild spænska fótboltans í Barcelona á morgun. 

Balde og Casadó hafa verið fjarverandi í síðustu leikjum og spiluðu meðal annars ekki í undanúrslitum Meistaradeildarinnar þar sem Barcelona datt út gegn Inter Mílanó, 7:6 samanlagt. 

Barcelona er með fjögurra stiga forystu á Real Madrid þegar fjórir leikir eru eftir. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert