Düsseldorf á enn möguleika að komast upp í efstu deild karla í þýska fótboltanum eftir heimasigur á Schalke, 2:0, í dag.
Þetta var næstsíðasti leikur Düsseldorf í deildinni en liðið er með 53 stig í fimmta sæti deildarinnar.
Ísak Bergmann Jóhannesson spilaði að vanda allan leikinn fyrir Düsseldorf en Valgeir Lunddal Friðriksson kom inn á 81. mínútu.
Düsseldorf á enn möguleika að komast í umspil við liðið sem hafnar í 16. sæti efstu deildarinnar en Düsseldorf fór í slíkan leik í fyrra og tapaði fyrir Bochum í vítakeppni eftir að hafa unnið fyrri leikinn á útivelli 3:0.
Til að komast í umspilið þarf Düsseldorf þó að treysta á að Elversberg og Paderborn tapi sínum leikjum í lokaumferðinni. Ef liðin gera bæði jafntefli og Düsseldorf vinnur Magdeburg í síðasta leik sínum enda þau öll með jafnmörg stig en hin tvö liðin eru með mun betri markatölu.