Íslendingaliðið Kristianstad vann góðan 3:2-sigur gegn Vittsjö í sænsku úrvalsdeild kvenna í knattspyrnu í dag.
Landsliðskonan Katla Tryggvadóttir jafnaði metin fyrir Kristianstad á 66. mínútu, 2:2, og aðeins þremur mínútum síðar skoraði Alexandara Jóhannsdóttir sigurmarkið, 3:2.
Bæði Katla og Alexandra voru í byrjunarliði Kristianstad í dag en samherji þeirra Guðný Árnadóttir kom inn á 67. mínútu.
Kristianstad er í fimmta sæti deildarinnar með 10 stig.