Landsliðskonan Sædís Rún Heiðarsdóttir átti stórgóðan leik í sigri Noregsmeistara Vålerenga á Bodö/Glimt, 4:0, í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta á heimavelli Vålerenga í Osló í dag.
Sædís Rún spilaði að vanda allan leikinn fyrir Vålerenga og lagði upp seinni tvö mörk liðsins.
Vålerenga er nú búið að vinna þrjá leiki í röð í deildinni og er liðið með 21 stig í þriðja sæti, tveimur stigum á eftir toppliði Brann.