Fulltrúar UEFA gengu út af þingi FIFA

Gianni Infantino í pontu á 75. þingi FIFA í Ascunsion, …
Gianni Infantino í pontu á 75. þingi FIFA í Ascunsion, höfuðborg Paragvæ. AFP/Daniel Duarte

Fulltrúar UEFA, knattspyrnusambands Evrópu, hafa sakað forseta FIFA, alþóða knattspyrnusambandsins, um að setja sína eigin pólitísku hagsmuni í forgang og hafa af þeim sökum mætt of seint á 75. þing FIFA sem haldið er í Ascunsion, höfuðborg Paragvæ þessa dagana.

Gianni Infantino, forseti FIFA, hefur verið á ferðalagi um Mið-Austurlönd ásamt Donald Trump, Bandaríkjaforseta, undanfarna daga. Infantino mætti af þessum sökum of seint til Ascunsion og varð að fresta upphafi þingsins um þrjá klukkutíma vegna þess.

Þessu mótmæltu fulltrúar UEFA á þinginu með því að ganga út af þinginu á fimmtudag og mæta ekki meira þann daginn. Alexander Ceferin, forseti UEFA, fór fyrir þessum hópi sem gekk út.

UEFA segir í yfirlýsingu að ekki hafi verið boðlegt að gera breytingar á þinginu á síðustu stundu og að því verði að svara.

„Þing FIFA er ein mikilvægasta samkoma alþjóða fótboltans, þar sem allar 211 þjóðir íþrótarinnar koma saman til að ræða málefni sem hafa áhrif á íþróttina yfir allan heiminn. Það hjálpar íþróttinni ekkert og virðist setja hana í aftursætið, að breyta dagskránni á síðustu stundu að því er virðist eingöngu til að þjóna pólitískum einkahagsmunum.

Við erum öll hérna til að þjóna fótboltanum, frá strætunum og að verðlaunapöllunum, og fulltrúar UEFA í FIFA-ráðinu töldu nauðsynlegt að sýna afstöðu sína með því að fara á þeim tíma sem dagskráin hafði áður gert ráð fyrir,“ segir í yfirlýsingunni frá UEFA.

Ísland á ekki fulltrúa í FIFA-ráðinu en fulltrúar KSÍ eru hinsvegar mættir til Ascunsion til að taka þátt í FIFA þinginu. Þar eru Þorvaldur Örlygsson formaður, Helga Helgadóttir varaformaður og Eysteinn P. Lárusson framkvæmdarstjóri KSÍ.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert