Anna og Guðrún íslandsmeistarar kvenna í tvímenningi í brids

Þrjú efstu pörin í Íslandsmótinu.
Þrjú efstu pörin í Íslandsmótinu.

Íslandsmót kvenna í tvímenningi í brids var spilað um helgina, með þátttöku 18 para. Anna Ívarsdóttir og Guðrún Óskarsdóttir tóku snemma forystuna og héldu henni til loka en Bryndís Þorsteinsdóttir og Guðrún Jóhannesdóttir voru nálægt því að hrifsa fyrsta sætið í síðustu umferðinni.

Lokastaðan var þessi:
Anna Ívarsdóttir - Guðrún Óskarsdóttir 95
Bryndís Þorsteinsdóttir - Guðrún Jóhannesdóttir 92
Hjördís Sigurjónsdóttir - Ragnheiður Nielsen 73
Ragnheiður Haraldsdóttir - Una Sveinsdóttir 63.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert