Pétur Guðmundsson ráðinn þjálfari Þórs

Pétur Guðmundsson hefur verið ráðinn þjálfari meistaraflokks karla í körfuknattleik hjá Þór á Akureyri næstu fjögur ár. Pétur mun einnig hafa umsjón með rekstri körfuknattleiksdeildar Þórs en félagið er í úrvalsdeildinni í körfuknattleik.

Pétur lék á árunum 1981 til 1989 í bandarísku NBA körfuboltadeildinni, með Portland Trailblazers, Los Angeles Lakers og San Antonio Spurs. Síðari ár hefur hann lagt stund á þjálfun og þjálfaði Kongsberg Penguins í fyrravetur í norsku BLNO deildinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert