Gerplustúlkur; Erum bestar í Evrópu á góðum degi“

Silfurstelpurnar í Gerplu taka létt spor á æfingu í gær.
Silfurstelpurnar í Gerplu taka létt spor á æfingu í gær. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

„Ísland hafði náttúrlega aldrei náð þessum árangri fyrir síðasta Evrópumót og hann er rosalega góður, en við vitum alveg fyrir hvað þessar stelpur standa. Gerpla er orðin mjög þekkt stærð í hópfimleikaheiminum,“ sagði Auður Inga Þorsteinsdóttir, framkvæmdastjóri fimleikafélagsins Gerplu, í gær, en þá heiðraði félagið kvennalið sitt sem vann til silfurverðlauna á Evrópumóti í hópfimleikum í Belgíu um síðustu helgi.

Hópfimleikar eru í mikilli sókn um allan heim og ljóst að lið Gerplu skipar sér þar í fremstu röð. Gerpla er ríkjandi Norðurlandameistari og vann einnig til silfurverðlauna á EM fyrir tveimur árum, en það var í fyrsta skipti sem íslenskt lið hlýtur verðlaun á því móti.

 „Þessi árangur núna hefur ekki komið okkur á óvart því við vitum hvað við erum með í höndunum,“ sagði Auður Inga, og Ásdís Guðmundsdóttir, einn silfurverðlaunahafanna, tekur í svipaðan streng.

Sjá ítarlega frásögn, viðtöl og myndir við Gerplustúlkurnar í íþróttablaði Morgunblaðsins í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert