Ásdís verður fánaberi á Ólympíuleikunum

Ásdís Hjálmsdóttir
Ásdís Hjálmsdóttir mbl.is/Ómar Óskarsson

Ásdís Hjálmsdóttir, spjótkastari úr Ármanni, verður fánaberi Íslands á setningarhátíð Ólympíuleikanna í London annað kvöld.

Ásdís er önnur íslenska konan sem fær þetta hlutverk á sumarleikum en fjórar hafa verið fánaberar á Vetrarólympíuleikum.

Guðrún Arnardóttir grindahlaupari var fánaberi á leikunum í Sydney í Ástralíu árið 2000. Á síðustu Ólympíuleikum í Peking í Kína var Örn Arnarson sundmaður fánaberi. 

Ásdís keppir nú í annað sinn á Ólympíuleikunum en hún var einnig með í Peking fyrir fjórum árum. Alls á Ísland 27 keppendur á leikunum í London.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert