Tileinkaði Schumacher sigurinn

Fjölmiðlar voru fljótir á vettvang við sjúkrahúsið í Lausanne er …
Fjölmiðlar voru fljótir á vettvang við sjúkrahúsið í Lausanne er fréttist af því að þar dveldist Michael Schumacher til endurhæfingar eftir að hafa vaknað úr rúmlega fimm mánaða dái. mbl.is/afp

Þýski knattspyrnumaðurinn Lukas Podolski hefur tileinkað Michael Schumacher 4:0 sigur þýska landsliðsins á Portúgölum á HM í Brasilíu.

Schumacher var nýverið vakinn úr dái á sjúkrahúsi í Grenoble í Frakklandi, en þangað var hann fluttur eftir slys á skíðum í Meribel í Frakklandi 29. desember sl.

„Hann er góður vinur og félagi og óður í fótbolta,“ segir  Podolski, sem leysti seint í leiknum markaskorarann Thomas Müller, sem skoraði þrennu, af hólmi. 

„Kannski hefur hann horft á útsendingu frá leiknum eða fengið fréttirnar af úrslitunum,“ sagði Podolski.

Schumacher var í síðustu viku fluttur á endurhæfingarsjúkrahús í Lausanne í Sviss, en þar er hann öllu nær heimaslóðum en í Grenoble.

Lukas Podolski á æfingu í Santo Andre í Brasilíu í …
Lukas Podolski á æfingu í Santo Andre í Brasilíu í dag. mbl.is/afp
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert