Jóhann keppir á HM fatlaðra í alpagreinum

Jóhann Þór Hólmgrímsson keppir fyrstu íslenskra karlamanna á HM fatlaðra …
Jóhann Þór Hólmgrímsson keppir fyrstu íslenskra karlamanna á HM fatlaðra í alpagreinum. Ljósmynd/ÍF

Heimsmeistaramót fatlaðra í alpagreinum er hafið í Panorama í Kanada. Ísland á einn keppanda á mótinu en það er Jóhann Þór Hólmgrímsson, Akur, sem keppir í mono-skíðastól. Með Jóhanni í för til Kanada er þjálfari hans Kurt Smitz. Með þátttöku sinni í mótinu verður Jóhann Þór fyrsti íslenski karlmaðurinn sem tekur þátt í heimsmeistaramóti fatlaðra í alpagreinum.

Mótið var sett í gærkvöldi og stendur til 10. mars.

Ekkert verður keppt í dag en fyrsta keppni er á morgun í bruni. Jóhann tekur þátt í svigi og stórsvigi. Jóhann spreytir sig fyrir 8. mars þegar hann keppir í stórsvigi og lokagrein hans fer fram á síðasta keppnisdegi mótsins, 10. mars, en þá keppir Jóhann í svigi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert