Aníta tveimur sekúndum frá Íslandsmetinu

Aníta, eftir hlaupið í dag.
Aníta, eftir hlaupið í dag. Árni Sæberg

Aníta Hinriksdóttir úr ÍR hljóp á 2:03,56 mínútum í 800 metra hlaupi kvenna á Meistaramóti Íslands sem haldið er í Laugardalshöll. 

Aníta var eini keppandinn og var tveimur sekúndum á eftir Íslandsmeti sínu sem er 2:01,56 mínútur en það setti hún á Evrópumeistaramótinu innanhúss í Prag í mars í fyrra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert