Tileinkaði mömmu sinni sigurinn

Gunnar Nelson.
Gunnar Nelson. Árni Torfason

Bardagakappinn Gunnar Nelson var skiljanlega ánægður eftir sigur sinn á Rússanum Albert Tumenov í blönduðum bardagalistum á UFC 87 í Rotterdam í Hollandi í kvöld.

„Hver einasti bardagi er einstakur fyrir mig. Ég vil tileinka mömmu þennan (sigur). Það er mæðradagurinn. Ég elska þig,” sagði glaður Gunnar Nelson í Hollandi í kvöld beint eftir bardaga sinn.

Gunnar tapaði síðasta bardagi gegn Demian Maia en bætti rækilega fyrir það í kvöld og í raun virtist aldrei spurning hvoru megin sigurinn myndi lenda eftir 1. lotuna en Gunnar vann í 2. lotu með upp­gjaf­ar­taki.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert