Trúði vart því sem gerðist

Dansæfingar Evrópumeistara stúlkna í hópfimleikum 2016.
Dansæfingar Evrópumeistara stúlkna í hópfimleikum 2016. Ljósmynd/Steinunn Anna

„Þetta er hreinlega ótrúlegt,“ sagði Júlíana Hjaltadóttir einn liðsmaður stúlknalandsliðs Íslands eftir að sveitin varð Evrópumeistari í hópfimleikum í dag. „Við höfum einbeitt okkar að þessu móti og æft mikið og það skilaði sér allt saman í dag,“ sagði Júlíana ennfremur en hún er ein tólf liðsmanna íslenska stúlknalandsliðsins sem vann keppnina í dag með nokkrum yfirburðum.

„Ég trúði varla að ég stæði á verðlaunapallinum og væri að taka við gullverðlaunum. Þetta er ólýsanlegt með öllu. Erfiði undanfarinna vikna og mánuði var svo sannarlega þess virði,“ sagði Júlíana Hjaltadóttir Evrópumeistari stúlkna í hópfimleikum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert