21 árs gamalt Íslandsmet féll í Memphis

Kolbeinn Höður Gunnarsson.
Kolbeinn Höður Gunnarsson. mbl.is/Árni Sæberg

Kolbeinn Höður Gunnarsson, spretthlaupari úr FH, varð í kvöld fyrsti Íslendingurinn til að hlaupa 200 metra hlaup undir 21 sekúndu og gerði það á háskólamóti í Bandaríkjunum. 

Kolbeinn kom í mark á 20,96 sekúndum og fékk silfurverðlaun en Kolbeinn keppir fyrir Memphis-háskólann. Mótið fór fram í Memphis og var haldið hjá Rhodes-skólanum en um var að ræða fyrsta mótið utandyra hjá Kolbeini á árinu. 

Íslandsmetið í greininni átti Jón Arnar Magnússon og var það 21,17 sekúndur. Setti tugþrautarmaðurinn metið í Reykjavík árið 1996. 

Athyglisvert er að Kolbeinn hljóp einnig á undir gildandi Íslandsmeti í 100 metra hlaupi en fær það ekki staðfest sem met þar sem meðvindur mældist of sterkur. Hljóp hann á 10,51 sekúndu. Meðvindur mældist +3,1 en var +1,1 þegar Kolbeinn hljóp 200 metra hlaupið. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert