Hilmar Örn Jónsson úr FH vann til gullverðlauna í sleggjukasti á Atlantic Coast Conference-mótinu sem fram fór í Atlanta í Bandaríkjunum um helgina. Hilmar Örn kastaði sleggjunni 69,02 metra strax í fyrsta kasti sem tryggði sigurinn.
Þetta er annað árið í röð sem Hilmar Örn ber sigur úr býtum á þessu sterka móti, sem er svæðismót margra mjög sterkra háskóla í Bandaríkjunum. Hilmar Örn keppir þar fyrir hönd háskólans í Virginíu.
Skólalið Hilmars hafnaði í öðru sæti í heildarstigakeppni mótsins, aðeins stigi á eftir sigurvegaranum sem kom úr Virginia Tech-skólanum.
Efst í fréttinni má sjá sigurkast Hilmars Arnar.