Önnur silfurverðlaun Róberts á HM

Róbert Ísak Jónsson.
Róbert Ísak Jónsson. Ljósmynd/ÍF

Róbert Ísak Jónsson vann sín önnur silfurverðlaun í nótt á heimsmeistaramóti fatlaðra í 50m sundlaug sem nú stendur yfir í Mexíkó.

Róbert átti í harðri baráttu við Bandaríkjamanninn Lawrence Sapp um gullið en Róbert kom í bakkann á nýju Íslandsmeti 1:06.99 mín. Sapp sem hrifsaði til sín gullið var aðeins örfáum sekúndubrotum á undan Róberti í bakkann eða á 1:06.42 mín. Róbert varð fyrr í vikunni heimsmeistari í 200 metra fjórsundi.

Már Gunnarsson varð sjöundi í úrslitum í 200m fjórsundi í flokki S13 en Már er flokkaður í keppni S12 en keppir í völdum greinum með sundmönnum sem hafa meiri sjón (S13). Og þá varð Sonja Sigurðardóttir í áttunda sæti í úrslitum í 50m skriðsundi í flokki S4.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert