Magnús valinn hjá Víkingi

Magnús Kristinn Magnússon með verðlaunin.
Magnús Kristinn Magnússon með verðlaunin.

Borðtennismaðurinn Magnús Kristinn Magnússon var í gærkvöld útnefndur íþróttamaður Víkings í Reykjavík fyrir árið 2017.

Magnus hefur verið í fremstu röð íslenskra borðtennismanna um árabil. Hann varð Íslandsmeistari í einliðaleik karla 2017 og varð bikarmeistari með liði Víkings. Þá vann Magnús mörg stigamót Borðtennissambands Íslands á árinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert