Þriðji sjómannabikar Róberts í röð

Róbert Ísak með Sjómannabikarinn.
Róbert Ísak með Sjómannabikarinn. mbl.is/Árni Sæberg

Róbert Ísak Jónsson, Sundfélaginu Firði, vann sjómannabikarinn þriðja árið í röð á árlega Nýárssundmóti fatlaðra barna og unglinga sem fram fór í Laugardalslaug í dag.

Sjómannabikarinn hlýtur sá keppandi mótsins sem náði besta sundafrekinu. Þetta er í 35. sinn sem bikarinn er veittur á mótinu. Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarráðherra var heiðursgestur mótsins og veitti hún Róberti bikarinn. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert