Öruggur sigur á Færeyingum

Íslenska liðið sem mætti Færeyjum í kvöld.
Íslenska liðið sem mætti Færeyjum í kvöld. Ljósmynd/Badmintonsamband Íslands

Ísland sigraði Færeyjar af öryggi, 10:0, í vináttulandsleik í badminton sem fram fór í TBR-húsunum í kvöld.

Ísland vann alla leikina í tveimur lotum. Atli Jóhannesson, aðstoðarlandsliðsþjálfari, stýrði liðinu í þessum leik. Var liðið fullskipað leikmönnunum sem fara á Evrópumeistaramótið í Rússlandi í næsta mánuði, fyrir utan að það vantaði Kára Gunnarsson en fyrir hann var Eiður Ísak Broddason kallaður inn í hópinn.

Nánari umfjöllun um leikinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert