Afturelding kom fram hefndum

Frá leiknum í dag.
Frá leiknum í dag. Ljósmynd/Jón Guðmundsson

Afturelding vann góðan 3:1-útisigur á Þrótti Nes í Mizuno-deild karla í blaki í dag. Liðin mættust einnig í gær og þá hafði Þróttur betur, 3:1.

Afturelding fór betur af stað og vann fyrstu tvær hrinurnar, 26:24 og 25:13. Þróttur minnkaði muninn með því að vinna þriðju hrinuna, 25:20, en Afturelding tryggði sér sigurinn með 25:15 sigri í fjórðu hrinu. 

Með sigrinum fór Afturelding upp í níu stig, tveimur stigum á eftir Þrótti, en liðin verma tvö neðstu sætin. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert