Arnar og Elísabet langhlauparar ársins

Arnar Pétursson og Elísabet Margeirsdóttir eru langhlauparar ársins 2017.
Arnar Pétursson og Elísabet Margeirsdóttir eru langhlauparar ársins 2017. Ljósmynd/Hlaup.is

Arnar Pétursson og Elísabet Margeirsdóttir eru langhlauparar ársins 2017 að mati hlaupara og lesenda hlaup.is. Verðlaunin voru afhent í níunda skipti í dag, en verðlaun voru veitt fyrir fyrstu þrjú sætin í karla- og kvennaflokki. Þorbergur Ingi Jónsson hafnaði í öðru sæti í karlaflokki og Kári Steinn Karlsson í þriðja sæti. Í kvennaflokki hafnaði Elín Edda Sigurðardóttir í öðru sæti og Guðlaug Edda Hannesdóttir í þriðja sæti.

40 tilnefningar bárust að þessu sinni frá lesendum hlaup.is. Íslenska hlaupasamfélagið kaus langhlaupara ársins í opinni netkosningu á milli sex hlaupara í karlaflokki og kvennaflokki.

Val á hlaupum ársins 2017 var einnig kunngjört á verðlaunaafhendingunni í dag. Vestmannaeyjahlaupið hlaut titilinn götuhlaup ársins 2017 og Súlur Vertical er utanvegahlaup ársins 2017. Rétt eins og með valið á langhlaupurum ársins þá eru það lesendur hlaup.is sem velja hlaup ársins með einkunnagjöfum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert