Svavar Örn íþróttamaður UMSE

Svavar Örn Hreiðarsson, knapi úr Hestamannafélaginu Hring.
Svavar Örn Hreiðarsson, knapi úr Hestamannafélaginu Hring. Ljósmynd/UMSE

Svavar Örn Hreiðarsson, knapi úr Hestamannafélaginu Hring, var á dögunum útnefndur íþróttamaður Ungmennasambands Eyjafjarðar, UMSE, árið 2017. Þá var hann útnefndur íþróttamaður Dalvíkurbyggðar og Hestamannafélagsins Hrings.

„Svavar Örn hefur verið í fremstu röð á kappreiðarbrautinni undanfarin ár og sló ekki slöku við þetta árið og var markmið hans að komast á HM í Hollandi með Heklu frá Akureyri. Þangað náði hann þó að leiðin hafi hvorki verið bein né greið. Veltan sem Svavar og Hekla tóku saman er heimsfræg og flestir töldu að þar með væri draumurinn búinn en svo var aldeilis ekki. Með eljusemi og slatta af keppnisskapi uppskar hann það sem stefnt var að.
Svavar keppti á Íslandsmótinu í 100 metra skeiði á Heklu og urðu þau þar í öðru sæti og á úrtökumóti fyrir HM urðu þau sigurvegarar. Þessi árangur ásamt góðum árangri á öðrum mótum varð til þess að Svavar komst í landsliðið með Heklu og fóru þau á Heimsmeistaramót íslenska hestsins í Hollandi í ágúst og kepptu þar í skeiði. Þar enduðu þau í 3. sæti í 100 metra skeiði og 10. sæti í 250 metra skeiði,“ segir í umsögn um Svavar.

Við sama tilefni var veitt viðurkenning og styrkur til Hestamannafélagsins Hrings fyrir framúrskarandi barna- og unglingastarf. 

Veittar voru viðurkenningar til íþróttamanna sem allir eiga það sameiginlegt að hafa skarað fram úr á sviði íþróttanna á árinu 2017. Eftirfarandi íþróttafólki voru veittar viðurkenningar fyrir að hafa unnið til Íslandsmeistaratitla, landsmótsmeistaratitla, verið valin í úrvals- eða afrekshópa sérsambanda eða í landslið á árinu 2017:

  • Brynjólfur Máni Sveinsson Íslandsmeistari í stórsvigi 12 ára.
  • Daníle Rosazza Íslandsmeistari í stórsvigi og samhliðasvigi 13 ára. 
  • Daði Hrannar Jónsson Íslandsmeistari í svigi 14 ára.
  • Guðni Berg Einarsson Íslandsmeistari í samhliðasvigi 14 ára.
  • Helgi Halldórsson Íslandsmeistari í svigi og alpatvíkeppni 14 ára.
  • Lovísa Rut Aðalsteinsdóttir Íslandsmeistari í svigi, stórsvigi, alpatvíkeppni og samhliðasvigi 14 ára.
  • Skíðalið Dalvíkur varð bikarmeistari í liðakeppni drengja. 
  • Hildur Marín Gísladóttir Íslandsmeistari í badminton í tvíliðaleik Táta U13. Valin í landsliðsæfingabúðir U15 í badminton, Íslandsmeistari í tvíliðaleik í borðtennis 13 ára og yngri. Valin í unglingalandslið í borðtennis.
  • Úlfur Hugi Sigmundsson, valinn í U15 landslið í badminton og borðtennis. Íslandsmeistari í tvíliðaleik 13 ára og yngri.
  • Heiðmar Örn Sigmarsson Íslandsmeistari barna í frisbígolfi, Íslandsmeistari í tvíliðaleik 13 ára og yngri í badminton. Íslandsmeistari í einliðaleik í borðtennis og valinn í unglingalandslið í borðtennis.
  • Trausti Freyr Sigurðsson valinn í unglingalandslið í borðtennis. 
  • Brimar Jörvi Guðmundsson Unglingalandsmótsmeistari í strandblaki 17-18 ára og Unglingalandsmótsmeistari í golfi 16-18 ára.
  • Baldur Smári Sævarsson Unglingalandsmótsmeistari í strandblaki 17-18 ára ásamt Brimari Jörva. 
  • Markús Máni Pétursson Unglingalandsmótsmeistari í strandblaki 11-12 ára.
  • Dagur Ýmir Sveinsson Unglingalandsmótsmeistari í strandblaki 11-12 ára.
  • Sveinn Margeir Hauksson Unglingalandsmótsmeistari í 4x100 metra boðhlaupi með liðinu Justice League 16-17 ára.
  • Veigar Heiðarsson Unglingalandsmótsmeistari í golfi 11-13 ára.
  • Sandra Ósk Svavarsdóttir Unglingalandsmótsmeistari í körfubolta og knattspyrnu 17-18 ára.
  • Rakel Sjöfn Stefánsdóttir Unglingalandsmótsmeistari í körfubolta og knattspyrnu 17-18 ára.
  • Rósa Dís Stefánsdóttir Unglingalandsmótsmeistari í körfubolta og knattspyrnu 17-18 ára.
  • Snædís Ósk Aðalsteinsdóttir Unglingalandsmótsmeistari í körfubolta og knattspyrnu 17-18 ára.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert