Sighvatur sigraði Tom Breese

Sighvatur tekur vel á Tom Breese.
Sighvatur tekur vel á Tom Breese. Ljósmynd/Snorri Björns

Bolamótið fór fram í fyrsta sinn fyrr í kvöld í húsakynnum Mjölnis. Sighvatur Magnús Helgason sigraði Tom Breese í aðalglímu kvöldsins. Keppt var í uppgjafarglímu á mótinu en einungis var hægt að sigra með uppgjafartaki undir svo kölluðum EBI-reglum. Engin stig voru í boði en þetta var í fyrsta sinn sem slíkt mót hefur verið haldið hér á landi.

Mjölnishöllin var smekkfull í kvöld en níu glímur fóru fram. UFC-bardagamaðurinn Tom Breese kom hingað til lands til að keppa við Sighvat en Sighvatur er með svart belti í brasilísku jiu-jitsu undir Gunnari Nelson.

Tom Breese náði glæsilegri fellu snemma í glímunni. Sighvatur var þó ekki lengi undir og náði bakinu á Breese á glæsilegan máta. Þar varðist Breese fimlega en á endanum náði Sighvatur að læsa hengingunni af bakinu og neyddist Breese til að gefast upp. Frábær frammistaða hjá Sighvati gegn mjög öflugum andstæðingi.

Frábærar glímur litu dagsins ljós á mótinu en besta glíma kvöldsins var viðureign Halldórs Loga Valssonar og Bjarna Kristjánssonar. Halldór Logi náði „guillotine“-hengingu þegar skammt var eftir af glímunni en glíman var stórskemmtileg.

Sigurpáll Albertsson sigraði Kristján Helga Hafliðason með vel heppnuðum fótalás. Glíma þeirra var sömuleiðis mjög skemmtileg en uppgjafartak Sigurpáls var valið besta uppgjafartak kvöldsins.

Öll úrslit mótsins má sjá hér að neðan:

Sighvatur Magnús Helgason sigraði Tom Breese með „rear naked choke“
Halldór Logi Valsson sigraði Bjarna Kristjánsson með „guillotine“-hengingu
Bjarki Þór Pálsson sigraði Davíð Frey Guðjónsson með „guillotine“-hengingu
Ómar Yamak sigraði Magnús 'Loka' Ingvarsson með fótalás
Karlotta Brynja Baldvinsdóttir sigraði Alex Colemen eftir armlás í bráðabana
Inga Birna Ársælsdóttir sigraði Dóru Haraldsdóttur með „heel hook“
Sigurpáll Albertsson sigraði Kristján Helga Hafliðason með fótalás
Margrét Ýr Sigurjónsdóttir sigraði Lilju Rós Guðjónsdóttur með „rear naked choke“ í framlengingu
Jósep Valur Guðlaugsson sigraði Helga Rafn Guðmundsson með „arm-triangle“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert