Hinn 21 árs gamli Christian Coleman frá Bandaríkjunum bætti heimsmetið í 60 metra hlaupi innanhúss á bandaríska meistaramótinu í frjálsum íþróttum sem fram fór um helgina.
Coleman kom í mark á 6,34 sekúndum og bætti heimsmetið um 0,05 sekúndur. Gamla metið átti Maurice Green frá árinu 1998.
Coleman náði besta tíma ársins í 100 metra hlaupi á síðasta ári þegar hann hljóp vegalengdina á 9,82 sekúndum en í úrslitahlaupinu á HM í London á síðasta ári hafnaði hann í öðru sæti á eftir Bandaríkjamanninum Justin Gatlin.