Sá elsti á toppi heimslistans

Roger Federer.
Roger Federer. AFP

Svissneski tenniskappinn Roger Federer hefur enn á ný skráð nafn sitt í sögubækurnar í tennisíþróttinni. Hann er aftur kominn í efsta sæti á heimslistanum og er þar með sá elsti sem er efstur á heimslistanum.

Federer, sem fagnaði sigri á opna Rotterdam mótinu um síðustu helgi og hefur unnið 20 risamót á ferli sínum, skákaði Spánverjanum Rafael Nadal úr toppsætinu en þeir hafa marga hildi háð á tennisvellinum í gegnum árin.

Federer er 36 ára gamall en sá elsti til að tróna í toppsæti heimlistans áður en Federer fór á toppinn var Bandaríkjamaðurinn Andre Agassi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert