Viktor og Hulda urðu stigahæst

Viktor Samúelsson varð stigahæstur í karlaflokki á báðum mótum.
Viktor Samúelsson varð stigahæstur í karlaflokki á báðum mótum.

Viktor Samúelsson og Hulda B. Waage úr Kraftlyftingafélagi Akureyrar urðu stigahæst á Íslandsmeistaramótinu í kraftlyftingum sem fór fram á Akureyri um síðustu helgi í umsjón Kraftlyftingafélags Akureyrar.

Í karlaflokki var Viktor Samúelsson, KFA, stigahæstur með 581,9 stig. Viktor lyfti 387,5-302,5-320 eða samtals 1.010 kg sem er nýtt og glæsilegt Íslandsmet í -120 kg flokki. Hnébeygjan og réttstöðulyftan eru líka persónulegar bætingar og bætingar á Íslandsmetum.

Í öðru sæti með 532,8 stig var Einar Örn Guðnason, Akranesi, sem líka bætti sig verulega. Hann lyfti 360-251-280 eða samtals 891 kg í -105 kg flokki. Hnébeygjan, bekkpressan og samanlagður árangur eru allt ný Íslandsmet.

Í þriðja sæti var Þorbergur Guðmundsson, KFA, með 525,4 stig, en hann lyfti 365-260-320 eða 945 kg í +120 kg flokki sem er persónuleg bæting.

Í kvennaflokki var Hulda B. Waage, KFA, stigahæst með 473,9 stig. Hulda lyfti 215-130-177,5 og jafnaði Íslandsmetið samanlagt í -84 kg flokki með 522,5 kg. Hnébeygjan er nýtt Íslandsmet í flokknum.

Önnur var Íris Hrönn Garðarsdóttir, KFA, með 373,3 stig og seríuna 170-95-150 samanlagt 415 kg, allt persónulegar bætingar.

Heildarúrslit á mótinu.

Hulda B. Waage varð stigahæst í kvennaflokki á báðum mótum.
Hulda B. Waage varð stigahæst í kvennaflokki á báðum mótum.

Íslandsmeistaramótið í bekkpressu var haldið samhliða og þar urðu Viktor og Hulda einnig stigahæst.

Í karlaflokki var Viktor Samúelsson, KFA, stigahæstur, en hann lyfti 295 kg í -120 kg flokki.
Annar var Alex Cambray Orrason, KFA, en hann setti nýtt Íslandsmet í -105 kg flokki með 251,5 kg. Þriðji var Einar Örn Guðnason, Akranesi, sem lyfti 240 kg í -105 kg flokki.

Í kvennaflokki var Hulda B. Waage stigahæst, en hún lyfti 133 kg í -84 kg flokki sem er nýtt Íslandsmet. Íris Hrönn Garðarsdóttir, KFA, lyfti 90 kg í -84 kg flokki og varð í öðru sæti.

Heildarúrslit á mótinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert