HK í báðum bikarúrslitaleikjunum

HK-ingar leika til úrslita gegn KA á morgun.
HK-ingar leika til úrslita gegn KA á morgun. mbl.is/Kristinn Magnússon

HK og KA mætast í bikarúrslitaleik karla í blaki í Digranesi í Kópavogi á morgun en bæði lið unnu undanúrslitaleiki sína þar í kvöld.

HK var rétt í þessu að bera sigurorð af Stjörnunni, 3:0, þar sem hrinurnar enduðu 25:19, 25:21 og 25:19. 

KA hafði mikla yfirburði gegn utandeildaliði Hrunamanna í fyrri leik kvöldsins og unnu 3:0. Þar enduðu hrinurnar 25:9, 25:3 og 25:8.

Úrslitaleikur HK og KA hefst klukkan 15.30 á morgun í Digranesi. HK er líka í bikarúrslitum kvenna og leikur þar gegn Þrótti frá Neskaupstað klukkan 13.30.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert