Thelma Lind í 9. sæti í Portúgal

Thelma Lind Kristjánsdóttir.
Thelma Lind Kristjánsdóttir. Ljósmynd/FRÍ

Thelma Lind Kristjánsdóttir hafnaði í 9. sæti í kringlukasti 23 ára og yngri á Evrópumótinu í kastgreinum í Leiria í Portúgal í dag. Thelma Lind kastaði 47,52 metra sem er fimmta besta kastið hennar á ferlinum.

Marija Tolj frá Króatíu hafnaði í 1. sæti með kast upp á 56,31 metra og Veronika Domjan frá Slóveníu varð önnur, en hún kastaði 54,48 metra. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert