Valgerður beið ósigur

Valgerður Guðsteinsdóttir atvinnuhnefaleikakona beið sinn fyrsta ósigur á atvinnuferlinum í Osló í gærkvöldi. Þar mætti hún hinni norsku Katharinu Thanderz í aðalbardaga kvöldsins þar sem að veði var „International“ léttvigtarbelti WBC hnefaleikasambandsins.

Bardaginn var jafn og skemmtilegur. Báðar sóttu á víxl og stundum ógjörningur að sjá á milli hvor hefði haft yfirhöndina. Þegar loturnar 8 voru liðnar þá var það dómaranna að skera úr um hver sigurvegarinn væri, og þeirra mat var einróma að sú norska hefði gert nóg til að tryggja sér sigurinn og í leiðinni heimsmeistarabeltið. 

Valgerður var að sjálfsögðu svekkt að hafa ekki unnið, en hún samþykkti bardagann með mjög skömmum fyrirvara.

„Ég þarf að gefa mér smá tíma til að meðtaka þetta allt. Þetta var svo stór stund og þetta kom upp með svo stuttum fyrirvara. Ég var með alla mína einbeitingu á því að vera eins tilbúin eins og hægt væri og það er ekki fyrr en núna að ég er að átta mig á því að ég var að berjast á stórum viðburði um stóran titil. Auðvitað er svekkjandi að hafa ekki unnið, en ég veit að ég gerði mitt besta og það voru alveg augnablik þarna inni í hringnum þar sem upplifði skýrt að ég hafði yfirhöndina,“ sagði Valgerður eftir bardagann í gær.

„Það var virkilega gaman að mæta svona öflugum andstæðing og finna að ég átti fullt erindi í hana. Að finna að allt það sem ég hef fórnað og neitað mér um til að elta drauminn minn um að vera atvinnuboxari hefur verið til einhvers. Ég vona innilega að þessi frammistaða hafi hjálpað mér við að klifra áfram upp metorðastigann. Helst væri ég til í að berjast sem fyrst aftur.“

Andstæðingurinn, Katahrina, sagði eftir bardagann að hún bæri mikla virðingu fyrir Valgerði. „Hún tók þennan bardaga með svo skömmum fyrirvara og hún stóð sig svo vel. Hún er alvöru bardagakona."

Guðjón Vilhelm, umboðsmaður Valgerðar, sagði hana hetju sem hafi verið hársbreidd frá því að sigra.

„Hún tók þennan bardaga með 8 daga fyrirvara og var hársbreidd frá því að sigra. Ég get lofað ykkur að Katharina liggur núna á bæn og vonar að hún þurfi ekki að mæta Valgerði aftur. Því ef Valgerður fær 6 vikur í undirbúning til að mæta henni þá er á hreinu að hún mun klára hana. Ég mun leggja inn beiðni um „re-match“ strax, en hvernig sem er þá er ljóst að Valgerður var verðugur fulltrúi Íslands og við getum öll verið stolt af hennar frammistöðu. Hún er þvílíkt hörkutól þessi stelpa og það verður gaman að sjá hvað gerist næst hjá henni.” 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert