Norðmaðurinn Johannes Høsflot Klæbo varð í dag yngsti karlmaðurinn sem verður heimsbikarmeistari samanlagt í skíðagöngu.
Hann tryggði sér titilinn með því að hafna í 25. sæti í 15 kílómetra göngu á móti í Falun í Svíþjóð í dagen. Klæbo er aðeins 21 árs gamall og bætti met Svíans Gunde Svan frá árinu 1982 en hann varð þá heimsbikarmeistari 22 ára að aldri.
Þá varð hann fyrstur í tuttugu ár til að vinna þrefaldan sigur á sama tímabilinu. Klæbo sigraði líka í stigakeppninni í sprettgöngu og jafnframt í keppni 23 ára og yngri.
Klæbo vann þrenn gullverðlaun á Vetrarólympíuleikunum í Pyeongchang í síðasta mánuði og varð þrefaldur heimsmeistari unglinga fyrir tveimur árum.