Stjarnan lagði KA

Stjörnukonur unnu í kvöld.
Stjörnukonur unnu í kvöld. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Stjarnan vann all öruggan sigur á KA, 3:0, í fyrsta leik liðanna í annarri umferð úrslitakeppninnar um Íslandsmeistaratitil kvenna í blaki sem fram fór á Álftanesi í kvöld.

Fyrsta hrina var æsispennandi og Stjarnan vann hana eftir upphækkun, 27:25. Aðra hrinu unnu Garðabæjarkonur hinsvegar 25:14 og þá þriðju 25:18.

Liðin mætast aftur á Akureyri á föstudagskvöld og þá getur Stjarnan með sigri tryggt sér sæti í undanúrslitum.

HK er 1:0 yfir á móti Völsungi í hinu einvígi 2. umferðar og þau mætast aftur á Húsavík annað kvöld. Liðin sem vinna þessi tvö einvígi fara í undanúrslit ásamt Þrótti frá Neskaupstað og Aftureldingu, sem enduðu í tveimur efstu sætum Mizuno-deildar kvenna og fóru beint í undanúrslit.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert