Stjarnan í undanúrslit eftir oddahrinu

Stjarnan er komin í undanúrslit.
Stjarnan er komin í undanúrslit. Ljósmynd/Golli/Kjartan Þorbjörnsson

Stjarnan er komin í undanúrslit Íslandsmóts kvenna í blaki eftir 3:2-sigur á KA í öðrum leik liðanna í 2. umferðinni í kvöld. Stjarnan komst í 2:0, en KA neitaði að gefast upp og jafnaði. Stjörnukonur voru hins vegar sterkari í oddahrinunni.

Fyrsta hrinan var jöfn og spennandi og endaði með 26:24-sigri Stjörnunnar, Stjarnan vann svo næstu hrinu 25:18 og staðan orðin vænleg. Þá hrukku KA-konur í gang og unnu örugga sigra, 25:15 og 25:12 í næstu tveimur hrinum og jöfnuðu leikinn. Stjarnan vann hins vegar oddahrinuna, 15:7 og leikinn í leiðinni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert