Magnús og Nevana í sérflokki

Alsælir sigurvegarar.
Alsælir sigurvegarar.

Magnús Gauti Úlfarsson og Nevana Tasic báru sigur úr býtum á Coca Cola Grand Prix-mótinu í borðtennis. Mótið fór fram í TBR-íþróttahúsinu um helgina.

Keppt var í opnum flokki, í karla- og kvennaflokki, og voru keppendurnir þrjátíu talsins frá félögunum Víkingi, KR, BH og HK.

Í kvennaflokki vann Nevana Tasic í úrslitum gegn Stellu Kristjánsdóttur. Leikar fóru þannig að Nevana vann 4-0.

Í karlaflokki léku Magnús Gauti og Sindri Þór Sigurðsson til úrslita en þar fóru leikar 4-0, rétt eins og hjá konunum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert