Gunnar Nelson úr leik í Liverpool

Gunnar Nelson er meiddur á hné.
Gunnar Nelson er meiddur á hné.

Bardagakappinn Gunnar Nelson er frá vegna meiðsla og mun ekki berjast gegn Neil Magny á UFC-bardagakvöldinu sem haldið verður í Liverpool í næsta mánuði. Þetta kemur fram á vef MMA Take Over.

Þar kemur fram að Gunnar hafði meiðst á hné og þurfi að fara í aðgerð. Um er að ræða gríðarleg vonbrigði fyrir Gunnar sem var búinn að bíða frá áramótum eftir bardaga.

Tæpir 10 mánuðir eru liðnir síðan að Gunnar barðist síðast en þá tapaði hann gegn Argentínumanninum Santiago Ponz­inibb­io sem fékk viðurnefnið „augnpotarinn” eftir vafasaman bardaga hans við Gunnar.

Rétt er að taka það fram að ekki er um staðfestar fregnir að ræða en að sögn UFC-sérfræðingsins Halldórs Halldórssonar, Dóra DNA, eru fréttirnar réttar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert