Mikill liðsstyrkur til KA

Paula Del Olmo og Miguel Mateo.
Paula Del Olmo og Miguel Mateo. Ljósmynd/KA

Blakdeild KA á Akureyri hefur fengið góðan liðsstyrk fyrir næstu leiktíð í karla- og kvennaflokki.

Fram kemur á heimasíðu KA að Miguel Mateo er genginn í raðir KA en hann var stigahæsti leikmaður Mizuno-deildarinnar á síðustu leiktíð. Hann kemur til KA frá Þrótti Neskaupstað.

Þá mun Miguel einnig taka að sér þjálfun kvennaliðs KA og barst kvennaliðinu einnig mjög góður liðsstyrkur því Paula del Olmo gengur til liðs við liðið einnig frá Þrótti Nes. Paula var þriðji stigahæsti leikmaður deildarinnar á nýliðnu tímabili.

Miguel Mateo er Spánverji og verður 29 ára á árinu en hann hefur undanfarin ár leikið gríðarlega vel á Spáni og varð hann stigahæsti leikmaður Spænsku deildarinnar 2014-2015 og 2012-2013. 2015-2016 var hann næststigahæstur en hann var einnig í kringum toppinn 2016-2017 og 2013-2014.

Paula del Olmo fór fyrir liði Þróttar Nes. í vetur þegar liðið hampaði öllum titlum vetrarins og er ljóst að koma hennar til liðsins er gríðarlegur styrkur fyrir KA-liðið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert