Magnús Gauti í 16 manna úrslit

Magnús Gauti Úlfarsson keppir í Eistlandi.
Magnús Gauti Úlfarsson keppir í Eistlandi. Ljósmynd/Borðtennissambandið

Borðtennismaðurinn Magnús Gauti Úlfarsson komst í dag upp úr riðli á Norður-Evrópumótinu í borðtennis. Mótið fer fram Í Haapsalu í Eistlandi og lýkur nk. sunnudag.

Magnús leikur í 16 manna úrslitum í fyrramálið og mætir þá Alex Naumi frá Finnlandi. Þeir Magnús Gauti og Davíð Jónsson munu einnig taka þátt í tvenndarkeppninni en þeir munu spila með konum frá Noregi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert