Elín Edda Sigurðardóttir setti brautarmet í 10 km hlaupi kvenna í Miðnæturhlaupi Suzuki 2018 sem fór fram í gærkvöld. Þetta er í 26. sinn sem hlaupið er haldið.
Í tilkynningu kemur fram að hlauparar létu ekki rigningu og rok stoppa sig í að mæta í Laugardalinn en alls skráðu sig 2.857 til þátttöku sem er nýtt met.
Um 1.200 erlendir hlauparar voru á meðal þátttakenda frá 46 löndum.
Verðlaunahafar kvöldsins voru eftirfarandi:
Hálft maraþon karlar
Marius Skeide Ruth frá Noregi leiddi hlaupið lengi vel en Arnar var alltaf rétt á hælunum á honum og tók svo forystuna á lokakaflanum. Tími Arnars er þriðji besti tími sem náðst hefur í hálfu maraþoni karla í þessu hlaupi.
Hálft maraþon konur
Andrea var aðeins 5 sekúndum frá því að slá brautarmetið í hálfmaraþoni kvenna en metið var sett í fyrra, 1:23:46, og það á Lisa Ring frá Svíþjóð.
10 km hlaup karla
Tími Rimvydas Alminas er þriðji besti tíminn í 10 km hlaupi karla sem náðst hefur á þessari braut.
10 km hlaup kvenna
Elín Edda Sigurðardóttir setti nýtt og glæsilegt brautarmet í 10 km hlaupi kvenna í kvöld en gamla metið, 37:40, setti Arndís Ýr Hafþórsdóttir 2016 og jafnaði Elín Edda Sigurðardóttir það í fyrra.
5 km hlaup karla
Þórólfur Ingi hljóp á 8.besta tímanum sem náðst hefur í 5 km hlaupi karla í þessari braut en hann á einnig 6. og 9. besta tímann.
5 km hlaup kvenna
Íris Anna hljóp á 3. besta tímanum sem náðst hefur í 5 km hlaupi kvenna í þessari braut í kvöld. Sjálf á hún 2. besta tímann, 18:36.