Andrea bætti eigið Íslandsmet

Andrea Kolbeinsdóttir, til vinstri.
Andrea Kolbeinsdóttir, til vinstri. mbl.is/Stella Andrea

Andrea Kolbeinsdóttir úr ÍR bætti eigið Íslandsmet í 3000 metra hindrunarhlaupi á HM U-20 ára í frjálsum íþróttum sem hófst í Tampere í Finnlandi í morgun.

Andrea hljóp í öðrum riðli og kom sjötta í mark af 14 keppendum á tímanum 10:21,26 mínútum. Hún bætti þar með eigið Íslandsmet sem hún setti í síðasta mánuði en þá hljóp hún á 10:31,69 mínútum. Andrea náði ekki að komast í úrslitin sem fram fara á föstudaginn en hún hafnaði í 22. sæti af 40 keppendum.

Á morgun keppir Tiana Ósk Whitworth í undanrásum í 100 metra hlaupi og Erna Sóley Gunnarsdóttir hefur keppni í undankeppninni í kúluvarpi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert