Metþátttaka í Laugavegshlaupinu

Hlaupaleiðin er afar falleg.
Hlaupaleiðin er afar falleg. Ljósmynd/Ólafur Þórisson

Laugardaginn 14.júlí næstkomandi fer Laugavegshlaupið fram í 22. sinn. Alls eru 555 hlauparar skráðir til keppni, 205 konur og 355 karlar. Aldrei hafa fleiri verið skráðir til þátttöku í Laugavegshlaupinu en nú og komust færri að en vildu.

Íslenskir þátttakendur eru 296 talsins og frá öðrum löndum 259. Fjölmennastir erlendu gestanna eru Bandaríkjamenn en þeir eru 63 skráðir, þá Bretar sem eru 31 talsins og þriðja fjölmennasta þjóðin eru Frakkar sem eru 24 skráðir til þátttöku. Þátttakendur í hlaupinu eru af 30 mismunandi þjóðernum.

Hlaupið hefst í Landmannlaugum og lýkur í Húsadal í Þórsmörk. Eins og margir vita er Laugavegurinn ein fjölfarnasta og vinsælasta gönguleiðin um íslensk öræfi. Venjan er að ganga leiðina á fjórum dögum en met hlauptími á þessari 55 km leið í Laugavegshlaupi er 3 klukkustundir og 59 mínútur í karlaflokki og 5 klukkustundir í kvennaflokki.

Hlaupið hefst við skála Ferðafélags Íslands í Landmannalaugum, laugardaginn 14.júlí 2018 klukkan 9.00 og lýkur við skála Ferðafélagsins í Húsadal í Þórsmörk. Tímamörk eru í hlaupinu og þurfa hlauparar að vera komnir í Álftavatn (22 km) á innan við 4 klst og í Emstrur (34 km) á innan við 6 klst og 15 mínútum. Það er því aðeins fyrir vel æfða hlaupara að taka þátt í þessari miklu þolraun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert