Fyrsti sigur Kerber á Wimbledon

Angelique Kerber og Serena Williams eftir leikinn.
Angelique Kerber og Serena Williams eftir leikinn. AFP

Þýska tenniskonan Angelique Kerber hafði betur gegn Serena Williams í úrslitaleik í kvennaflokki á Wimbledon-mótinu í dag.

Kerber vann í tveimur settum, 6:3 og 6:3, og kom í veg fyrir að Williams jafnaði heimsmet Margaret Court yfir sigra á risamótum, en Williams hefur unnið 23 risamót á ferlinum.

Williams var hins vegar aðeins að leika á fjórða mótinu sínu eftir að hún eignaðist barn og var Kerber sterkari frá byrjun og vann sitt þriðja risamót á ferlinum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert