Hlauparar í Laugavegshlaupinu sem fram fór í 22. sinn í dag streyma nú í mark í Þórsmörk en þar er milt veður og búið að vera sól og blíða í dag. Sigurvegarar hlaupsins voru þau Þorbergur Ingi Jónsson og Rannveig Oddsdóttir.
Rannveig sigraði í kvennaflokki en hún hljóp á besta tíma íslenskra kvenna frá upphafi á þessari 55 km leið, 5:16:11. Í öðru sæti var Anna Berglind Pálmadóttir á 5:26:28 og í því þriðja Diana Dzaviza frá Lettlandi á 5:30:04.
Þorbergur Ingi sigraði í karlaflokki á þriðja besta tíma sem náðst hefur í hlaupinu 4:10:44. Hann nú fjóra bestu tímana í hlaupinu. Í öðru sæti var Simon Karlsson frá Svíþjóð á 4:32:21 og í þriðja sæti Ingvar Hjartarson á 4:34:40.
Aðstæður voru betri en flestir þorðu að vona á hlaupaleiðinni í dag, ekki rigning í upphafi eins og spáð var og hlýrra. Snjórinn í kringum Hrafntinnusker sem er hæsti punktur leiðarinnar var þó hlaupurum erfiður því hann var laus í sér. Þó að vindur væri ekki mikill þegar komið var fram hjá Hrafntinnuskeri var hann í fangið á hlaupurum sem er alltaf erfitt.