Tufegdzic til KA

Vladimir Tufegdzic í leik með Víkingi gegn sínum nýju samherjum …
Vladimir Tufegdzic í leik með Víkingi gegn sínum nýju samherjum í KA á Akureyrarvelli í fyrrasumar. mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Serbneski framherjinn Vladimir Tufegdzic hefur samið við knattspyrnudeild KA og leikur með Akureyrarliðinu út keppnistímabilið. Þetta kemur fram á heimasíðu KA í morgun.

Tufegdzic hefur verið í herbúðum Víkings í Reykjavík síðan 2015, tekið þátt í 60 leikjum og gert 18 mörk. Þar af eru 53 leikir og 12 mörk í efstu deild.

„Þessi 27 ára gamli Serbi mun gefa sóknarlínu KA meiri breidd og er mikil ánægja með komu hans hingað norður,“ segir á heimasíðu KA.

Tufegdzic hefur verið með í sjö leikjum Víkings í Pepsi-deildinni í sumar en ekki skorað. Þá lék hann  tvo bikarleiki og gerði eitt mark.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert