Kári vann Bandaríkjamann

Kári Gunnarsson úr TBR komst í kvöld í 8-manna úrslit í einliðaleik á Yonex/K&D Graphics International Series mótinu sem fram fer í Kaliforníu í Bandaríkjunum. 

Kári hafði betur gegn Bandaríkjamanninum Calvin Lin og þurfti aðeins tvær lotur til þess 21:14 og 21:15. 

Kári mætir Sheng Lyu í 8-manna úrslitum á morgun en Sheng er einnig frá Bandaríkjunum líkt og Calvin.

Kári var fyrir mótið í 220. sæti heimslistans en þeir Lin og Lyu eru aftar á listanum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert