Íslendingar sigursælir í Dublin

Íslensku keppendurnir voru sigursælir.
Íslensku keppendurnir voru sigursælir. Ljósmynd/Mjölnir

Fjórir keppendur frá Mjölni kepptu á NAGA-glímumótinu í Dublin í gær. Íslensku keppendurnir unnu allar sínar glímur og koma heim með fjölmörg verðlaun.

Keppt var í brasilísku jiu-jitsu í galla (gi) og án galla (nogi) á mótinu í dag. NAGA heldur glímumót um allan heim en sigurvegarar í flokkunum fá glæsilegt belti. Þau Inga Birna Ársælsdóttir, Halldór Logi Valsson, Jeremy Aclipen og Mikael Leó Aclipen kepptu öll á NAGA-mótinu í Dublin í dag og koma heim með sjö belti.

Halldór Logi Valsson átti upphaflega að keppa í svartbeltingaflokki í galla og í expert-flokki (fjólublá, brún og svört belti saman) í nogi í -99 kg. Þar sem enginn var skráður í gi-hluta flokksins keppti hann því bæði í -99 kg og +99 kg flokki í nogi (án galla) þrátt fyrir að vera bara um 93 kg. Þar vann Halldór allar sínar fimm glímur og tók því gull í báðum flokkum.

Hann vildi hins vegar fá að keppa meira og efitr smáleit að andstæðingum fékk hann loks að keppa í -93 kg flokki í galla þar sem hann tók gullið líka eftir eina viðureign.

Inga Birna Ársælsdóttir keppti í brúnbeltingaflokki í galla og í expert-flokki í nogi. Inga Birna fékk eina glímu í galla og eina í nogi og vann þær báðar á stigum. Inga var færð upp um flokk í gallanum og vann þá glímu 12-0. Hún tók því tvöfalt gull í gær.

Jeremy Aclipen keppti í 30-35 ára flokki í intermediate styrkleikaflokki þar sem hann tók gull í þriggja manna flokki. Sonur hans, Mikael Leó Aclipen, keppti svo í 14-15 ára unglingaflokki þar sem hann tók gull í bæði galla og nogi. Líkt og Inga var Mikael færður upp um flokk í nogi en vann samt stærri andstæðing í skemmtilegri glímu.

Mjölnisfólk vann því allar sínar glímur í gær og kemur heim með 100% sigurhlutfall frá mótinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert