Anton bætti 9 ára gamalt Íslandsmet

Anton Sveinn McKee bætti níu ára gamalt Íslandsmet í dag.
Anton Sveinn McKee bætti níu ára gamalt Íslandsmet í dag. mbl.is/Kristinn Magnússon

Anton Sveinn McKee úr SH bætti nú rétt í þessu 9 ára gamalt Íslandsmet Jakobs Jóhanns Sveinssonar í 200m bringusundi hér á Íslandsmeistaramótinu í 25m í sundi í Hafnarfirði.

Anton synti sigraði í greininni á tímanum 2:07,04 sem er einnig undir HM lágmarki. Gamla metið var 2:07,75, sett í nóvember 2009.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert