„Þetta er þriðja árið í röð. Ég byrjaði af krafti og skilaði því sem ég þurfti að gera,“ sagði ánægður Andri Nikolaysson Mateev eftir að hann tryggði sér sinn þriðja Íslandsmeistaratitil í skylmingum á jafnmörgum árum með öruggum 15:7-sigri á Gunnari Agli Ágústssyni í úrslitum Íslandsmótsins í gær.
„Þetta var fínn dagur í dag. Ég mun æfa vel á næstunni og fara svo á Evrópumót og heimsbikarmót. Það er eitt mót í desember og verður næsta ár spennandi. Ég held bara áfram.“
Andri hefur átt góðu gengi að fagna í íþróttinni að undanförnu og hann ætlar sér að ná ansi langt.
„Ég set mér oft lítil markmið, en stærsta markmiðið mitt er að fara á Ólympíuleikana og vera fyrsti Íslendingurinn til að vinna gull á Ólympíuleikunum. Það er búið að vera markmiðið mitt síðan ég var fimm ára. Ég læt ekkert stoppa mig.“
Vel heyrist í Andra er hann keppir og fagnar hann hverju stigi af mikilli innlifun. „Þetta hefur komið svolítið með reynslunni. Þetta losar stress og svo vil ég skemmta fólkinu,“ sagði Andri.