Anton Sveinn McKee hafnaði í 16. sæti í 100 metra bringusundi á heimsmeistaramótinu í sundi í 25 metra laug í Hangzhou í Kína í dag.
Anton synti á 57,94 sekúndum í undanúrslitunum en hann synti í fyrri undanúrslitasundinu.
Í undanrásum í morgun synti Anton á 57,57 sekúndum og bætti eigið Íslandsmet frá árinu 2017. Anton var á sjöundu braut í undanúrslitasundinu en hann var með tólfta besta tímann eftir undanrásir.
Ítalinn Fabio Scozzoli náði bestum tíma í undanúrslitunum þegar hann synti á 56,30 sekúndum. Átta efstu synda til úrslita venju samkvæmt.
Tími Antons að loknum 50 metrum var 27,19 sekúndur.